Algengar spurningar - og svörin
Hvenig fæ ég lyklana?
Ef við erum ekki á staðnum þegar þú kemur þá hringir þú dyrabjöllunni
(eða öllu heldur styður á flöt sem á stendur "Call") og þá getum við
opnað útidyrnar og hleypt þér inn. Í forstofunni bíður þín síðan umslag
með lyklum að íbúðinni.
Við svörum líka símanum allan sólarhringinn - 511 2166
.
Hvenær er íbúðin tilbúin?
Almennt talað kl. 15 á komudegi. Daginn sem þú ferð þarf að skila íbúðinni kl. 12:00
Við getum geymt farangur ef íbúðin er ekki tilbúin þegar þú kemur.
Hafi íbúðin verið laus daginn áður færð þú lyklana kl. 9 um morguninn
Eru rúmin uppbúin og handklæði fyrir hendi?
Já. Íbúðirnar eru mjög vel búnar. Hægt er að fá þrif daglega, skipt um handklæði og á rúmum
eftir þörfum, og við vöskum meira að segja upp fyrir þig!
Er hægt að fá morgunmat?
Við bjóðum ekki uppá morgunmat, en ef þú óskar getum við keypt inn fyrir þig
og fyllt á ísskápinn áður en þú kemur
Þú greiðir skv. strimli verslunar auk 950 króna þjónustugjaldi Allar íbúðirnar hafa fullbúin
eldhús, þótt sum séu ekki stór.
Er boðið uppá internet tengingu?
Ókeypis þráðlaus nettenging nær til allra íbúða
Hvað eru íbúðirnar langt frá miðbænum?
Íbúðirnar eru rétt við miðbæinn, um 500 metra frá honum eða svo.
Er boðið uppá bílastæði?
Aðeins ein íbúð, nr. 70, hefur bílastæði. Hins vegar eru gjaldstæði við bæði húsin og
oft hægt að leggja gjaldfrjálst í nálægum hliðargötum.
Skálholtsstígur 2a og Garðastræti 40, 101 Reykjavík. Sími: 511 2166 Email: 
|